top of page
FYRSTA SKOÐUN
FYRSTA SKOÐUN

Við fyrstu skoðun tannréttingar skoðar Berglind tennur og bit. Oft þarf að taka röntgenmyndir til frekari greiningar t.d. kjálkabreiðmynd, sem er yfirlitsmynd af kjálkum og tönnum. Meðferðarþörf er metin, hugsanleg meðferð útskýrð og gróf meðferðar- og kostnaðaráætlun gerð. Ef tekin er sú ákvörðun að byrja í tannréttingum er gefinn tími í upphafsgögn. Engin skuldbinding felst í því að koma í fyrstu skoðun og ekki þarf að koma með sérstaka tilvísun frá fjölskyldutannlækninum.

UPPHAFSGÖGN

Tennur eru skannaðar með þar til gerðum þrívíddarskanna. Einnig eru teknar ljósmyndir og röntgenmyndir, bæði yfirlitsmyndir af kjálkum og höfði. Þessi tími tekur u.þ.b. 1 klst. Sérþjálfað starfsfólk tekur gögnin en greining er í höndum Berglindar. Þegar búið er að greina gögnin, mæla stöðu kjálka og tanna, er gerð meðferðaráætlun. Ef fjarlægja þarf einhverjar tennur sendir Berglind bréf með beiðni þess efnis til tannlæknis viðkomandi.

bottom of page