top of page
GREIÐSLULEIÐIR

Hægt er að dreifa greiðslubyrðinni með því að gera jafngreiðslusaming fyrir allri meðferðinni. Með þeim hætti er kostnaðinum vegna tannréttingameðferðar dreift jafnt yfir meðferðartímann.

Krafa birtist í heimabanka greiðanda fyrsta dag hvers mánaðar. Svona samningur býðst vaxtalaus fyrir sjúkling eða forráðamann sjúklings, en ef ekki er staðið í skilum með mánaðarlegar greiðslur bætast vextir við. Meðferð er stöðvuð ef ekki er greitt samkvæmt samningi í þrjá mánuði. Skuldajafnað er á milli aðila í lok meðferðar.

Annar kostur er að gera upp hvern tíma fyrir sig með staðgreiðslu, greiðsluseðli eða kreditkorti. Athugið, svo hægt sé að ljúka meðferð og fjarlægja spangir þarf að gera upp eldri skuldir ef þær eru til staðar. Einnig þarf að ganga frá lokagreiðslu daginn sem spangir eru fjarlægðar, staðgreitt eða með kreditkorti (og möguleiki er á raðgreiðslusamningi).

Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða hluta af tannréttingum.

Meðferðarkostnaður á tannréttingameðferð fer eftir umfangi meðferðarinnar en tannréttingavandamál eru af margvíslegum toga og er kostnaður háður því.

Nánari upplýsingar um kostnað fyrir meðferð getur þú nálgast með því að hafa samband og koma í fyrstu skoðun.

website_images_B8.webp
bottom of page